Móttökudeild 21AM
Á móttökudeild kvenna er almenn göngudeildarþjónusta og bráðaþjónusta fyrir kvensjúkdóma, krabbameinslækningar kvenna og innkirtlakvensjúkdóma. Auk þess er veitt bráðaþjónusta vegna vandamála á fyrsta þriðjungi (fyrstu 12 vikum) meðgöngu og vegna sjúkdóma á fyrstu vikum eftir fæðingu.
Sérmóttökur eru starfræktar fyrir
- eftirlit eftir krabbameinsmeðferð.
- eftirlit eftir skurðaðgerðir.
- undirbúning fyrir fóstureyðingu.
- innkirtlakvensjúkdóma.
- endurtekin fósturlát.
- getnaðarvarnaráðgjöf.
- ýmis sértæk vandamál innan kvensjúkdóma og fæðingahjálpar.
Tekið er við greiðslum vegna aðgerða og lyfjameðferðar á kvenlækningadeild 21A.
Mikilvægt er að hafa samband við heilsugæslustöð eða lækni áður en komið er á móttöku kvenna, þar sem nauðsynlegt er að hafa tilvísun frá lækni. Tilvísunar er ekki þörf ef um er að ræða blæðingar eða verki á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu.
Staðsetning: Á 1. hæð kvennadeildahúss
Opið virka daga kl. 8:00-16:00
Símar: 543 3266 og 543 3265
Deildarstjóri: Elísabet Ólafsdóttir elisolaf@landspitali.is
Yfirlæknir: Jens A. Guðmundsson jens@landspitali.is
ATH! Mæðraskoðun er hjá Miðstöð mæðraverndar eða á heilsugæslustöðvum í viðkomandi hverfi, ekki á móttöku kvenna.
