Kvenlækningadeild 21A
Kvenlækningadeild 21A er fjölbreytt deild sem er í senn dag- og legudeild fyrir konur með bráða kvensjúkdóma og konur sem þurfa skurðaðgerð vegna góðkynja eða illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum. Starfrækt er tilvísunarbráðamóttaka kvenna eftir kl. 16:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar og aðra almenna frídaga. Konur sem greinst hafa með illkynja sjúkdóma í kvenlíffærum eiga greiðan aðgang að deildinni eftir aðgerð og einnig meðan á krabbameinslyfjameðferð stendur. Á deildinni eru 24 rúm.
Helstu aðgerðir á deildinni eru keiluskurðir, kviðspeglanir, kviðskurðir, legnám, aðgerðir vegna blöðru- og endaþarmssigs, fóstureyðingar og útsköf. Einnig fleygskurðir á brjóstum, brottnám brjósta og uppbyggingar á brjóstum.
Lögð er áhersla á nákvæma og
einstaklingsmiðaða hjúkrun með góðri eftirfylgd.
Árið 2007 hófst innleiðing á flýtibata við legnám (fast track surgery)og hefur það ferli haft í för með sér að legutími hefur styst enn frekar, líðan sjúklinga eftir aðgerðir batnað og fylgikvillum hefur fækkað.
Staðsetning: á 1. hæð í A-álmu kvennadeildahúss.
Opið alla daga, allan sólarhringinn.
Heimsóknartími: Kl. 18:30 – 20:00
Deildarstjóri: Hrund Magnúsdóttir
Netfang: hrundmag
hjá landspitali.is
Yfirlæknir: Jens A. Guðmundsson
Netfang: jens
hjá landspitali.is
Símar:
-Skiptiborð
Landspítala 543 1000
Símatími vegna beiðna um innlagnir er
þriðjudaga og miðvikudaga milli kl. 9:00 og 15:00 hjá innlagnarstjóra í síma 543
3270
