Kvennadeildir
Sóló á Suðurpól til styrktar kvennadeildum
Vilborg Arna Gissurardóttir gengur á suðurpólinn í nóvember og desember 2012.Áheit eru til stuðnings Lífi styrktarfélagi kvennadeilda Landspítala. Sjá hér
Á kvennadeildum er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta fyrir konur í meðgöngu, fæðingu og sængurlegu og konur með vandamál vegna almennra og illkynja kvensjúkdóma. Veitt er víðtæk ráðgjöf til heilbrigðisstofnana og til almennings. Grunn- og framhaldsmenntun og rannsóknar- og vísindastarf um heilbrigði kvenna er mikilvægur hluti af starfseminni. Framhaldsnám í fæðingar- og kvensjúkdómalækningum ásamt ljósmæðranámi er ríkur þáttur í daglegu starfi kvennadeilda. Megin starfsemin er við Hringbraut en læknar eru einnig, samkvæmt sérstökum samningum, í hlutastarfi við krabbameinsskoðun í leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands, kvensjúkdómaþjónustu hjá öldrunardeildum á LSH og við skoðanir í Barnahúsi.
|
Staðsetning

Heimsóknartímar
Meðgöngu-og sængurkvennadeild 2. hæð kl 17:00-19:00 alla daga.
Opið er fyrir maka frá kl. 09:00 á morgnana og geta þeir verið hjá móður og barni fram á kvöld.
Kvenlækningadeildir 1. hæð kl. 18:30-20:00
Hreiðrið 3. hæð Heimsóknir takmarkast við nánustu aðstandendur í samráði við foreldra.
