Göngudeild
Staðsetning
Dalbraut 12
Opið 8:00 til 16:00 virka daga
Símanúmer
Móttaka s. 543 4300
Bráðaþjónusta eftir lokun s. 543 4050
Starfsemin
Göngudeildin barna- og unglingageðdeildar veitir börnum og unglingum að 18 ára aldri þjónustu vegna geð- og þroskaraskana. Starfsemin einkennist af þverfaglegu samstarfi og er skipt í nokkur teymi; bráðateymi, almennt teymi, fjölskyldumeðferðarteymi, átröskunarteymi, taugateymi og vettvangsteymi. Unnið er að greiningu og meðferð ásamt fræðslu, þjálfun og ráðgjöf.
Á deildinni starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafar, leikskólasérkennari, listmeðferðarfræðingar og ritarar.
Nánari upplýsingar um göngudeildina er að finna í upplýsingabæklingi BUGL
