Um Barnaspítalann
Á Barnaspítala Hringsins er veitt fjölbreytt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri. Þverfagleg teymi, skipuð læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sinna skjólstæðingum ýmissa sérsviða. Þau veita margs konar sértæka þjónustu, m.a. við börn með sykursýki, krabbamein, hjartasjúkdóma, taugasjúkdóma, svefnvandamál, nýrnasjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, ofnæmissjúkdóma og ónæmissjúkdóma.
Nýbygging Barnaspítala Hringsins var formlega opnuð snemma árs 2003. Þar eru góðar aðstæður fyrir börnin og foreldrana, aðra aðstandendur og starfsfólk. Skjólstæðingar Barnaspítala Hringsins eru af öllu landinu. Barnalæknar spítalans veita einnig þjónustu á nokkrum heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni með heimsóknum og fjarlækningum samkvæmt samningum þar um.
Vökudeild 23D er gjörgæsla fyrir nýbura og fyrirbura. Fyrirburar og veikir nýburar dvelja á vökudeild 23D þar sem er nýburagjörgæsla. Flest barnanna koma beint eftir fæðingu. Deildin veitir bráðaþjónustu allan sólarhringinn allt árið.
Á bráðamóttöku barna 20D koma börn með ýmis bráð veikindi, oftast eftir tilvísun frá heimilislækni eða sérfræðingi. Opið er allan sólarhringinn. Þar er einnig möguleiki á að fylgjast með börnum í skemmri tíma eða allt að 24 klst. án innlagnar á sjúkrahúsið.
Á göngudeild 20E er ýmis þjónusta við börn sem eru á Barnaspítala Hringsins og önnur sem þangað er vísað, greining sjúkdóma, meðferð og eftirlit.
Fjölmörg börn koma á dagdeild 23E í rannsóknir, minni aðgerðir eða til meðferðar en þurfa ekki nauðsynlega að dvelja næturlangt á spítalanum. Börnin koma iðulega að morgni, fara í ýmsar rannsóknir en dvelja heima á kvöldin og á nóttinni.
Barnaskurðdeild 22D/B5 er á tveimur stöðum, á deild 22D á Barnaspítala Hringsins og í Fossvogi á deild B5. Á deild 22D leggjast börn vegna almennra barnaskurðlækninga, þvagfæraskurðlækninga, augnlækninga, lýtalækninga, brunaáverka og hjarta- og brjóstholsskurðlækninga. Börn sem þurfa að leggjast inn vegna bæklunarskurðaðgerða, háls-, nef- og eyrnalækninga, heila- og taugaskurðlækninga eða vegna slysa fara í aðgerðir í Fossvogi. Börn sem liggja á deild B5 í Fossvogi flytjast í flestum tilfellum á deild 22D við Hringbraut ef þau þurfa á lengri dvöl að halda en einum sólarhring. Árið 2007 var tekin upp ný þjónusta við börn sem þurfa á tannlækningum að halda í svæfingu og er hún á barnaskurðdeild B5 í Fossvogi.
Á barnadeild 22E dvelja börn og unglingar að 18 ára aldri. Þetta er blönduð lyflækningadeild þar sem veitt er sérhæfð þjónusta við börn með krabbamein, hjarta-, tauga-, nýrna- og meltingafærasjúkdóma, auk barna með sýkingar. Flestar innlagnir eru bráðainnlagnir. Á deildinni eru þó allmörg börn sem þurfa að dvelja í lengri tíma vegna flókinna vandamála og erfiðrar meðferðar.
Leikskóli og skóli
Öll börn sem dvelja á Barnaspítala Hringsins geta verið í leikstofu og skóla og notið þjónustu leikskólakennara og kennara í skapandi og vel búnu umhverfi. Algengt er að góðir gestir heimsæki leikstofuna til að stytta börnum stundir, þar á meðal trúðurinn Oliver sem sýnir reglulega töfrabrögð og gantast við börnin. Skólinn er rekinn í samvinnu við Austurbæjarskólann í Reykjavík. Öll börn sem dveljast í lengri tíma á spítalanum eiga kost á kennslu eins og önnur grunnskólabörn á Íslandi.
Á Barnaspítala Hringsins er röntgenstofa í samstarfi við rannsóknarsvið LSH. Sjúkraþjálfarar sinna börnum og unglingum á deildum Barnaspítalans og hafa þar aðstöðu til sjúkraþjálfunar. Þá eru félagsráðgjafar og prestur starfandi í tengslum við Barnaspítala Hringsins. Í húsinu er kapella þar sem foreldrar, skjólstæðingar og starfsfólk geta notið samvista og kyrrðar.
Mikilvægur stuðningur. Barnaspítali Hringsins nýtur stöðugt gjafmildi fólks og stuðnings. Kvenfélagið Hringurinn styður starfsemina af miklum krafti, eins og lengi hefur verið, og starfrækir veitingastofuna Hringsbúð í anddyrinu sem er opin virka daga. Seldar eru léttar veitingar og foreldrar, gestir og gangandi geta tyllt sér þar niður. Í tengslum við veitingastofuna eru annað slagið menningarviðburðir af ýmsu tagi í anddyrinu sem allir geta sótt.
