Ráðgjafar / Stuðningsfulltrúar
Næsti yfirmaður ráðgjafar og stuðningsfulltrúa er hjúkrunardeildarstjóri
Hjúkrunardeildarstjóri ber ábyrgð á allri hjúkrun og starfsmannahaldi deildarinnar. Vakthafandi hjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á þeirri hjúkrun sem veitt er.
Ábyrgð og skyldur starfsins
Hjúkrunardeildarstjóri ber ábyrgð á allri hjúkrun og starfsmannahaldi deildarinnar. Vakthafandi hjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á þeirri hjúkrun sem veitt er.
Meginmarkmið starfsins
- Veita hágæða þjónustu sem byggir á sýn og stefnu hjúkrunar innan Landspítala
- Veita örugga og árangursríka þjónustu byggða á þekkingu og umhyggju fyrir sjúklingi og fjölskyldu hans
Kröfur um menntun og faglega þekkingu
Sjá stofnanasamning SFR og LSH
Ábyrgð og skyldur starfsins
- Ráðgjafar / stuðningsfulltrúar starfa eftir starfslýsingum 1, 2, 3, 4 og 5
Hvað varðar nánari útfærslu á störfum ráðgjafa /stuðningsfulltrúa 1 er vísað til verklýsinga deilda
