Framkvæmdastjóri lækninga
Ólafur Baldursson er framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala.
Framkvæmdastjóri lækninga er yfirlæknir Landspítala og starfar skv. 10. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40, frá 2007. Hann er faglegur ábyrgðarmaður lækninga á sjúkrahúsinu og þróar og mótar læknisþjónustuna í samstarfi við forstjóra, framkvæmdastjórn og aðra stjórnendur lækninga.
Framkvæmdastjórar lækninga, hjúkrunar og vísinda,- mennta,- og nýsköpunarsviðs vinna náið saman að ýmsum málefnum er varða faglega þróun í starfi spítalans.
Framkvæmdastjóri lækninga ber ábyrgð á eftirtöldum verkefnum:
-
Gæðamál; starfsemi gæðadeildar, sýkingavarnadeildar og deildar lyfjamála. Þróun, stefna og samræming gæðamála, sýkingavarna, klínískra leiðbeininga og lyfjamála í starfi spítalans. Umsjón, skráning og úrvinnsla athugasemda við klínískt starf og samskipti við Landlæknisembættið.
-
Sjúkraskrá; varðveisla, aðgengi, ritstjórn, eftirlit og þróun. Áhersla á innihald og umgengni. Starfrækir sérstaka nefnd sem hefur eftirlit með notkun rafrænnar sjúkraskrár.
-
Viðbragðsáætlun (samstarfsverkefni með framkvæmdastjóra bráðasviðs); þróun og endurskoðun viðbragðsáætlunar.
