Næringarráðgjöf
Ábendingar um sjúkdóma þar sem þörf gæti verið fyrir næringarráðgjöf:
- krabbamein
- skurðaðgerð á meltingarvegi
- sykursýki
- meltingarfærasjúkdómar
- nýrnasjúkdómar
- vanþrif
- vannæring
- ofnæmi
- hjarta- og æðasjúkdómar
- átröskun
- offita
- efnaskiptasjúkdómar
- erfið meðganga
- ofl.
Markmið næringarráðgjafar er að veita skjólstæðingum LSH góða þjónustu sem ávallt byggir á nýjustu fagþekkingu hverju sinni. Góð næring er hluti meðferðar þar sem gott næringarástand flýtir fyrir bata og minnkar líkur á sýkingum.
Klínískur deildarstjóri er Svava Engilbertsdóttir
