Næringarstofa
Starfsmenn Næringarstofu veita næringarráðgjöf til skjólstæðinga spítalans og starfa við kennslu og rannsóknir í næringarfræði.
Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 8:00 – 16:00.
Starfsemi næringarstofu skiptist í þrennt:
- Næringarráðgjöf
- Fræðsla og kennsla
- Rannsóknir.
Forstöðumaður næringarstofu er Inga Þórsdóttir
Næringarfræði er sjálfstæð vísindagrein sem fjallar um hlutverk næringarefna í líkamanum og tengsl mataræðis og heilsu. Til að auka þekkingu í næringarfræði þarf þverfaglega nálgun og beitir greinin margs konar aðferðum.
Aðferðir næringarfræðinnar geta til dæmis verið:
- klínískar
- faraldsfræðilegar
- í sumum tilfellum tilraunir.
Næringarfræði er heilbrigðisvísindagrein sem tengist raungreinum og greinum sem byggja á lýðheilsufræði. Í næringarfræði tengjast því raunvísindi og heilbrigðisvísindi við þekkingu á menningu og félagslegum aðstæðum, eins og fjölskyldubundnum og samfélagslegum þáttum, iðnaði og markaði.
