Áfallamiðstöð
Áfallamiðstöð LSH veitir þeim sem leita til bráðamóttöku Fossvogi sálrænan stuðning og aðstoð við tilfinningalega úrvinnslu áfalls. Auk þess sinnir starfsfólk miðstöðvarinnar þeim beiðnum sem berast um ráðgjöf og áfallahjálp innan LSH.
Tilgangur þjónustunnar er að aðstoða þolendur að takast á við eðlileg streituviðbrögð í kjölfar alvarlegra áfalla. Þeim sem leita til áfallamiðstöðvarinnar er sýnd fyllsta tillitssemi og hlýja og þess gætt að þeim sé ekki mætt með vantrú eða tortryggni.
- Í hópslysum og hamförum unnið samkvæmt viðbragðsáætlun LSH
- Ráðgjöf fyrir heilbrigðisþjónustu í landinu um áföll og afleiðingar þeirra.
- Beiðnum utan Landspítala sinnt eftir því sem tök eru á.
Markmið áfallamiðstöðvarinnar LSH er að tryggja velferð og stöðu þeirra sem leita eftir þjónustu vegna áfalla þar sem:
- lífi eða limum er ógnað.
- hætta steðjar að fjölskyldu eða vinum.
- einstaklingar verða vitni að ofbeldi, líkamsmeiðingum eða dauða.
Þjónusta áfallamiðstöðvar LSH
- Starfsfólk bráðadeildar veitir sálrænan stuðning við móttöku og aðhlynningu. Í framhaldi af því er metin þörf fyrir sérhæfðari stuðning innan áfallamiðstöðvar og skrifuð beiðni til starfsfólks áfallamiðstöðvar.
- Starfsfólks áfallamiðstöðvar metur andleg/líkamleg viðbrögð og bjargráð í kjölfar áfalls og þörf fyrir sérhæfð úrræði.
- Aðstoð er veitt við úrvinnslu áfalls.
- Veitt er fræðsla og upplýsingar um algengar afleiðingar áfalla.
- Unnið er að styrkingu bjargráða og stuðningskerfa.
- Hvatt er til ábyrgðar þolenda á eigin heilsu og velferð með aukinni meðvitund og virkri þáttöku í vali á meðferðarúrræðum.
- Tilvísanir í viðeigandi þjónustu.
- Fylgt er lögum um tilkynningaskyldu til barnaverndaryfirvalda.
Áfallamiðstöð LSH tekur við beiðnum og tilvísunum frá
- deildum LSH
- einstaklingum og fjölskyldum
- fagaðilum utan LSH
Hringja til að hafa samband
- 543 2085 - fyrirspurnir til áfallamiðstöðvar – opið allan sólarhringinn
- 543 2000 - afgreiðsla slysa- og bráðdeildar LSH
Áfallateymi LSH er einungis virkjað á neyðartímum skv. útkalli Almannavarnardeildar ríkislögreglustjórans eða samkvæmt viðbragðsáætlun LSH.
Í teyminu er starfsfólk Landspítala á bráðasviði, geðsviði og kvenna- og barnasviði.
