Hvert annað er hægt að leita
Bráðamóttaka Landspítala í Fossvogi sérhæfir sig í að taka á móti þeim sem eru bráðveikir eða slasaðir. Þjónustan er opin allan sólahringinn og þar starfar starfsfólk sem er sérhæft í bráðafræðum. Mikilvægt er að þeir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda leiti til réttra aðila með vandamál sín. Það er til þæginda fyrir þann sem þarf á þjónustunni að halda að komast sem fyrst á réttan áfangastað. Um þónokkra staði getur verið að ræða þegar leita þarf til heilbrigðisstétta eftir aðstoð og flókið fyrir þann sem ekki þekkir til að rata á réttan stað.
Starfsfólk bráðamóttöku landspítalans vill leggja sitt af mörkum í þágu skjólstæðinga sinna þannig að hægt sé að greiða götur þeirra sem þurfa á þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda. Við höfum því tekið saman helstu staði sem hægt er að leita á annað en bráðamóttöku LSH eftir þjónustu.
Tenglar fyrir önnur úrræði:
- Barnalæknavaktin í domus medica
- Bráðamóttaka barna
- Bráðamóttak geðsviðs
- Heilbrigðisþjónusatan (Embætti landlæknir)
- Heilsugæslan
- Hjartagátt
- Læknavakt
- Tannlæknavaktin
- Heilsuvernd
Símaráðagjöf læknavaktar
Sími : 1770
