Hvað er í boði fyrir börnin í Rjóðri?
Hjúkrun og umönnun, tenging við lækna Barnaspítala Hringsins, þroskaþjálfun, sjúkraþjálfun, sund, nudd, tónlist og söngur, listsköpun í Smiðju, grunnskóli Barnaspítala Hringsins fyrir utanbæjar börn, útivist, náttúruskoðun, gönguferðir, ýmiskonar leikir og afþeying.

TRAUST - VIRÐING - VELFERÐ
Kjörorð Rjóðurs eru: TRAUST - VIRÐING – VELFERÐ
Traust er lykilatriði í öllu okkar starfi og samskiptum svo og virðing fyrir skjóstæðingum okkar og umhyggja fyrir velferð þeirra.

Í Rjóðri á að vera "skjól til skapandi vaxtar"
Rjóður vill gjarnan vinna með skapandi og fjölhæfu fólki og hefur átt í góðu samstarfi við ýmsa í því skini svo sem listamenn á sviði tónlistar og myndlistar, við Rauða kross Íslands og Listaháskóla Íslands.
