Sýkingavarnir

Sýkingarvaldandi örverur er að finna víða, bæði á okkur sjálfum og í umhverfinu.
Snertismit er langalgengasta smitleiðin innan sjúkrahúsa og utan. Snertismit verður ýmist beint eða óbeint og gegna hendur manna þar veigamiklu hlutverki. Beint snertismit felur í sér að húð snertir sýkta eða sýklaða húð og örverur flytjast á milli hýsils (sá sem ber örveruna) og næms einstaklings. Örverurnar geta tekið sér tímabundna eða varanlega bólfestu á húð einstaklings. Óbeint snertismit felur í sér snertingu einstaklings við hlut sem hefur mengast við snertingu frá öðrum.
Sýkingavarnadeild LSH sér meðal annars um eftirlit og skráningu á ýmsum tegundum ónæmra örvera og fræðslu til starfsfólks og leitar að leiðum til að draga úr líkum á spítalasýkingum. Vinnubrögð allra starfsmanna sjúkrahússins eiga að miða að því að hindra dreifingu sýkla í umhverfi og milli sjúklinga. Hreinlæti er grundvallaratriði í sýkingavörnum og handhreinsun skipar þar mjög stóran sess.
Hvernig drögum við úr hættu á spítalasýkingu?
Sjúklingar:
- Þvo og/eða spritta hendur oft.
- Þvo hendur eftir salernisferðir og fyrir máltíðir.
- Fara fram á að starfsfólk (allar stéttir) sé með hreinar hendur áður en það annast þig.
- Ef þú ert með leggi eða línur, s.s. súrefni í nös, þvaglegg eða æðaleggi er mikilvægt að fá upplýsingar um hvernig hjá starfsmönnum um hvernig best er að umgangast slíkt.
Aðstandendur:
- Þvo og/eða spritta hendur við komu á deild.
- Ekki koma í heimsókn ef viðkomandi er með kvef, hósta, niðurgang eða uppköst.
