Á sjúkrahúsinu
Á Landspítala er veitt hefðbundin þjónusta háskólasjúkrahúss til þess að mæta þörfum sjúklinga og aðstandenda. En hvernig er dagurinn á sjúkrahúsinu og við hverju er að búast? Hvað með lyf og lyfjagjafir? Hver er réttur sjúklingsins og skyldur hans og starfsmannanna? Hvaða sérþjónusta er í boði? Af hverju eru sýkingavarnir svona mikilvægar?
Það vakna margar spurningar og hér reynum við að svara sem flestum þeirra.
