Frétt

03. 02 2012

Föstudagspistill 3. febrúar 2012

 

Björn Zoëga

Ágætu samstarfsmenn!

Eins og venjulega á þessum árstíma er mikið að gera á spítalanum. Mig langar til að hvetja starfsfólk til að huga að sýkingavörnum, sérstaklega þessa dagana. Við þurfum að reyna að koma í veg fyrir sýkingafaraldra eins og Nóró innan spítalans.  Afleiðingar af þeim eru bæði erfiðar og slæmar fyrir sjúklinga og starfsfólk.

Enn hefur þurft að loka skurðlækningadeild vegna bakteríutilfellis.  Það hefur óhjákvæmilega haft áhrif á fjölda skurðaðgerða og truflað starfsemina talsvert, auk þess sem svona lagað kostar okkur alltaf stórfé. 

Gerum það sem okkur er fært. Lesum yfir verklagsreglur um sýkingavarnir og förum eftir þeim. Húsnæðismál spítalans gera okkur sannarlega erfitt fyrir í þessum efnum en við verðum að reyna okkar besta og vona að þau leysist sem allra fyrst því það skiptir máli fyrir öryggi sjúklinga og starfsaðstöðu okkar. Nýr Landspítali verður hannaður þannig að auðveldara verður að taka á þessu vandamáli og svokölluðum spítalasýkingum mun því vonandi fækka.

Baráttukveðjur, látið í ykkur heyra,
Björn


UMHYGGJA,  FAGMENNSKA,  ÖRYGGI,  FRAMÞRÓUN

Til baka
Síðast breytt: 02.11.2009 14:18
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli