Forstjóri
Björn Zoëga er forstjóri Landspítala og stýrir framkvæmdastjórn spítalans. Hann var skipaður í starfið frá 1. október 2010.
Forstjóri Landspítala er skipaður af heilbrigðisráðherra til fimm ára í senn og starfar samkvæmt erindisbréfi þar sem tilgreind eru helstu markmið í þjónustu og rekstri stofnunarinnar og verkefni hennar til lengri og skemmri tíma. Forstjóri ber ábyrgð á stofuninni í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf, á þeirri þjónustu sem stofnunin veitir og að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Aðstoðarforstjóri Landspítala er Benedikt Olgeirsson.
Síðast breytt: 29.03.2012 09:46