Frétt

27. 01 2012

Ráðin hjúkrunardeildarstjóri á öldrunardeild L2

Ingibjörg Tómasdóttir

Ingibjörg Tómasdóttir, hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin í starf hjúkrunardeildarstjóra á öldrunardeild L2 á Landakoti frá 15. janúar 2012.

Ingibjörg lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og lýkur meistaranámi í hjúkrunarstjórnun frá HÍ nú í vor. Ingibjörg hefur langa reynslu af hjúkrun aldraðra. Frá árinu 2003-2010 var hún forstöðumaður Hrafnistu á Vífilsstöðum.

Til baka
Síðast breytt: 12.07.2010 10:12
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli