Frétt
03. 03 2010
Nýtt tölvusneiðmyndatæki í maí
Skrifað var undir samning um kaup á nýju tölvusneiðmyndatæki fyrir Landspítala 3. mars 2010 og verður það tekið í notkun í byrjun maímánaðar.
Tölvusneiðmyndatæki gefa þversniðs- og þrívíddarmyndir af líffærum og eru ein mikilvirkustu greininartæki sem notuð eru í læknisfræði í dag. Tækið er af fullkomnustu gerð og mun bæta greiningu sjúkdóma hjá skjólstæðingum Landspítala umtalsvert. Tækið gefur sérstaklega aukna möguleika á greiningu hjarta- og æðasjúkdóma en bætir greiningu í fjölda sjúkdómaflokka. Það mun gefa lægri geislaskammta en eldra tæki sem það leysir af hólmi sem er mjög mikilvægt vegna mikillar notkunar tækninnar.
Tækið er framleitt af Philips lækningatækjum og er Vistor umboðsaðili þeirra á Íslandi.
Síðast breytt: 12.07.2010 10:12