Sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfun endurhæfingarsviðs Landspítala er á fjórum starfsstöðvum:
* Fossvogur
* Grensás
* Hringbraut
* Landakot
* Starfsmannasjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfarar endurhæfingarsviðs Landspítala starfa á sjúkradeildum spítalans.
Einnig sinna þeir starfsfólki spítalans með leiðbeiningum um forvarnir svo sem fræðslu, ráðgjöf og heilsurækt.
Sérhæfð göngudeild er starfrækt á öllum starfsstöðvum.
Rannsóknarsjúkraþjálfari er í hlutastarfi á starfsstöðvum til að efla rannsóknir og vísindastarf.
Sjúkraþjálfari býr yfir sérþekkingu á hreyfingum mannslíkamans, þjálfun og líkamsbeitingu.
Starf sjúkraþjálfara er m.a. fólgið í greiningu og meðferð ýmissa sjúkdóma, meiðsla, ofálags eða meðfæddrar fötlunar.
Hann sér einnig um fræðslu varðandi orsakir ýmissa einkenna, ráðgjöf og leiðbeiningar.
Sjúkraþjálfari stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan um leið og hann fær fólk til þess að taka ábyrgð á eigin heilsufari
Sjúkraþjálfari velur meðferð sem hentar þörfum hvers og eins, eftir að hafa skoðað hann nákvæmlega. Slík meðferð getur til dæmis verið:
-æfingameðferð
-þjálfun
-rafmagnsmeðferð, þ.e.hljóðbylgjur, stuttbylgjur, raförvun, lasermeðferð o.fl.
-þroskameðferð barna
-meðferð á líkamlegum einkennum sem rekja má til sálrænna truflana
-ráðgjöf og fræðsla o.fl.

Síðast breytt: 06.05.2009 12:02