Vífilsstaðaspítali

Vífilsstaðaspítali var opnaður sem spítali fyrir berklasjúklinga árið 1910. Vífilsstaðaspítali var hannaður af Rögnvaldi Ólafssyni, einum af stofnendum Verkfræðingafélags Íslands.  Lokið var við húsið á 16 mánuðum.

Upp úr 1970 var farið að taka við öndunarfærasjúklingum á Vífilsstöðum og meðferðardeild fyrir áfengissjúklinga sem tilheyrði Kleppsspítala starfaði þar frá 1976 til 2002.

Hrafnista hefur rekið hjúkrunarheimili fyrir aldraða á Vífilsstöðum frá ársbyrjun 2004. Flestir sem dvelja þar koma þangað af öldrunardeildum Landspítala. 

 

Síðast breytt: 05.06.2009 16:19
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli