St. Jósefsspítali Landakoti
St. Jósefsspítali Landakoti var vígður 16. október 1902. Að byggingu hans stóðu St. Jósefssystur. Í upphafi var St. Jósefsspítali eini kennsluspítali landsins og var hann alla tíð virk menntastofnun fyrir heilbrigðisstéttir. Á sjúkrahúsinu var sinnt bráðaþjónustu og á seinni árum var einnig veruleg dag- og göngudeildarþjónusta. Árið 1976 seldu St. Jósefssystur íslenska ríkinu sjúkrahúsið og var það rekið sem sjálfseignarstofnun til ársloka 1995. Þá sameinaðist St. Jósefsspítali Borgarspítalanum og til varð Sjúkrahús Reykjavíkur.
Síðast breytt: 19.09.2011 12:16