Sjúkrahús Reykjavíkur
Sjúkrahús Reykjavíkur varð til, um áramótin 1995-1996, við samruna Borgarspítalans og St. Jósefsspítala Landakoti og var rekið af Reykjavíkurborg til ársloka 1998.
Sjúkrahús Reykjavíkur var helsta bráðasjúkrahús landsins og veitti slysa- og bráða-þjónustu allan sólarhringinn. Sjúkrahúsið rak starfsemi í Fossvogi á Landakoti, Grensási, Arnarholti á Kjalarnesi og Hvítabandinu við Skólavörðustíg.
Síðast breytt: 05.06.2009 16:18