Ríkisspítalar

Upphafið af rekstri Ríkisspítala má rekja til ársins 1907 en þá hófst starfsemi á Kleppsspítala. Þremur árum síðar var Vífilsstaðaspítali tekinn í notkun.  Landspítalinn tók til starfa 1930 en hann var frá upphafi stærsta sjúkrahús landsins og aðalkennslustofnun læknadeildar Háskóla Íslands.

Árið 1935 var starfsemi allra ríkisrekinna sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana sameinuð undir einni stjórn og rekstraraðila sem hét Ríkisspítalar. Þar á meðal voru Landspítalinn, Kleppsspítali, Vífilsstaðaspítali, Rannsóknastofa Háskólans og Kristnesspítali í Eyjafirði. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri tók við rekstri Kristnesspítala. Á hinum stöðunum voru reknar deildir sem hluti af Landspítalanum. Seinna bættust við fleiri deildir á Landspítalanum.

Ríkisspítalar hverfa úr lögum með gildistöku laga um heilbrigðisþjónustu 1. september 2007.

Síðast breytt: 05.06.2009 16:18
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli