Borgarspítalinn
Borgarspítalinn, sem var stofnaður og rekinn af Reykjavíkurborg, var formlega opnaður 28. desember 1967 þegar fyrsta sjúkradeildin tók til starfa. Röntgendeild, saumastofa, ræsting, lín og fleiri deildir höfðu þó hafið starf nokkru fyrr.
Spítalinn tók strax virkan þátt í menntun heilbrigðisstétta og má í því sambandi nefna að Borgarspítalinn starfrækti sjúkraliðaskóla frá 1966 og þar til Sjúkraliðaskóli Íslands tók við þeirri fræðslu. Borgarspítalinn varð strax aðal bráða- og slysasjúkrahús landsins og veitti almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu.
Síðast breytt: 05.06.2009 16:25