Röntgenrannsóknir
Við almennar röntgenrannsóknir er röntgengeisli notaður til að taka myndir af beinum líkamans, kviðarholi eða lungum. Oftast eru teknar 2-4 myndir en fjöldinn fer eftir því hvað á að rannsaka.
Undirbúningur rannsóknar
Undirbúningur fyrir röntgenrannsókn er fyrst og fremst að afklæðast, taka af sér skart og aðra fylgihluti sem skyggt geta á myndefnið og valdið myndgöllum.
Framkvæmd rannsóknar
Geislafræðingar sjá um framkvæmd rannsóknar. Þú þarft að standa, sitja eða liggja á bekk allt eftir því hvað á að rannsaka. Geislafræðingur stillir þér inn og gefur viðeigandi fyrirmæli, t.d. um öndun. Röntgenrannsóknir taka að jafnaði 10-30 mínútur. Geislavarnir s.s. blýdúkar, svuntur o.fl. eru notaðar eftir þörfum við röntgenmyndatökur en mikilvægasta geislavörnin felst í nákvæmum og réttum vinnubrögðum geislafræðinga. Að rannsókn lokinni les röntgenlæknir úr rannsókn og svar er sent til þíns læknis.
Ert þú barnshafandi?
Mikilvægt er að konur á barneignaraldri láti geislafræðing vita ef þær eru barnshafandi eða telja það mögulegt. Forðast er að mynda barnshafandi konur nema brýna nauðsyn beri til og er þá sýnd sérstök aðgæsla m.t.t. geislavarna. Reynt er eftir fremsta megni að velja aðrar rannsóknaraðferðir.