Bráðaþjónusta
Bráðaþjónusta er veitt á göngudeild BUGL. Þar starfar bráðateymi sem tekur á móti símtölum og metur hvort mál krefjist tafarlausrar íhlutunar. Sé svo fer fram bráðamat í göngudeild þar sem málinu er komið í viðeigandi farveg og tekin afstaða til hvort þörf sé fyrir innlögn á bráðamóttökudeild (unglingadeild) BUGL. Bráðateymi sendir skriflegar upplýsingar um niðurstöðu bráðamats til heilsugæslulæknis að loknum afskiptum BUGL.
Bráðaþjónustan við Dalbraut er opin á dagvinnutíma s. 543 4300 en á öðrum tímum er símtölum beint til bráðaþjónustu geðsviðs við Hringbraut s. 543 4050. Ef talin er þörf á tafarlausri þjónustu er haft samráð við barna- og unglingageðlækni frá BUGL á bakvakt sem ákveður hvort málinu er vísað áfram á bráðamóttöku barnadeildar á Barnaspítala Hringsins eða það sett í annan viðeigandi farveg.