Hjúkrunarráð
|
Hlutverk hjúkrunarráðs er að vera faglegur ráðgefandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður Landspítala og stjórnendur hans. Hjúkrunarráð tekur þátt í þróunarvinnu innan sjúkrahússins meðal annars með því að hvetja til klínískra rannsókna í hjúkrun og góðra tengsla við menntastofnanir í heilbrigðisfræðum. Hjúkrunarráð er til ráðuneytis varðandi fagleg málefni hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, svo og rekstur, stjórnun, uppbyggingu og nýtingu sjúkrahússins. Í hjúkrunarráði eiga sæti allir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður spítalans, sem hafa starfað í þrjá mánuði og eru í föstu starfi. Allir félagar hafa tillögu- og atkvæðisrétt. |
Stjórn hjúkrunarráðs Landspítala 2010-2011. Efsta röð frá vinstri: Júlía Linda Ómarsdóttir, Elísabet Halldóra Árnadóttir, Ingibjörg Fjölnisdóttir og Hildur Magnúsdóttir. Miðröð frá vinstri: María Guðnadóttir, Valgerður Grímsdóttir, Halldóra Hálfdánardóttir, Kristín Halla Marinósdóttir og Rannveig Jóna Jónasdóttir. Neðsta röð frá vinstri: Sigríður Guðmundsdóttir, Dröfn Ágústsdóttir, Eygló Ingadóttir og Björk Inga Arnórsdóttir. |
|
Formaður hjúkrunarráðs: Eygló Ingadóttir Netfang hjúkrunarráðs: hjukrunarrad@landspitali.is |