Stefna

Gæðastefna

Sýklafræðideild Landspítala er opinber rannsóknarstofa á sviði sýklafræði.
Deildin hefur það að markmiði að uppfylla þarfir þeirra sem óska eftir rannsóknum, kennslu, fræðslu og ráðgjöf í sýklafræði. Deildin stundar vísindarannsóknir og er tilvísunarrannsóknarstofa fyrir Ísland ásamt því að framleiða æti til sýklarannsókna fyrir aðrar rannsóknarstofur.
Starfsemi deildarinnar stuðlar að bættri lýðheilsu með aðild að skráningu smitsjúkdóma, smitrakningu sýkinga, skimrannsóknum, bólusetningum og fræðslu til almennings.
Deildin mun sinna þessum verkefnum á sem bestan hátt og innan þess ramma sem ákveðinn er af heilbrigðisyfirvöldum, gæðaáætlun heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, stjórn sjúkrahússins og alþjóðastaðlinum ISO15189.
Allt starfsfólk deildarinnar skal þekkja gæðastefnuna og gæðastjórnunarkerfið og starfa samkvæmt því í hvívetna. Rannsóknarstofan mun halda úti góðri faglegri starfsemi og uppfylla skilyrði gæðakerfisins til að tryggja hámarks gæði við rannsóknir á sýnum. Stjórn rannsóknarstofunnar mun sjá til þess að skilyrði staðalsins ISO15189 séu uppfyllt.

Meginmarkmið

Að tryggja sjúklingum og heilbrigðisstarfsfólki bestu þjónustu sem völ er á.
Að viðhalda gæðastjórnunarkerfi sem tryggir viðeigandi meðhöndlun, vinnslu og svörun rannsókna á sjúklingasýnum.
Að skapa aðstæður sem hvetja hæfasta starfsfólk sem völ er á til að leita eftir störfum á deildinni og hvetur starfsmenn til að nýta tækifæri til menntunar og að taka þátt í vísindaverkefnum.
Að veita nemum heilbrigðisstétta fræðslu og verklega þjálfun í samræmi við nýjustu þekkingu.
Að deildin verði þekkt sem leiðandi á sviði sýklafræði hérlendis og erlendis og stundi öfluga vísindastarfsemi.

Síðast breytt: 29.05.2009 10:00
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli