Sýklafræðideild

Sýklafræðideild er rannsóknarstofa á sviði bakteríufræði, sveppafræði og sníkjudýrafræði. Markmið starfseminnar er að uppfylla þarfir þeirra sem óska eftir þjónusturannsóknum, kennslu og fræðslu í sýklafræði. Deildin er tilvísunarrannsóknastofa fyrir Ísland og veitir ráðgjöf til heilbrigðisyfirvalda, heilbrigðisstofnana og annarra sýklafræðirannsóknarstofa og rekur einnig áhætturannsóknarstofu (P3) til greiningar á sérlega hættulegum sýklum. Deildin framleiðir æti til sýklarannsókna fyrir eigin starfsemi og til sölu. Á deildinni eru stundaðar vísindarannsóknir og kennsla. Sjá nánar um þjónustu sýklafræðideildar og í gæðastefnu.

Aðsetur við Barónsstíg og í Ármúla 1a. Sjá nánari staðsetningu 

Afgreiðslutími og vaktir

Móttaka sýna er eingöngu á Barónsstíg og er opin virka daga frá 8:00 – 16:00.
Utan þess tíma má setja sýni í lúgu eða senda til vaktmanna á Landspítala Hringbraut.

Ef óskað er eftir rannsóknum eftir lokunartíma, þ.e. eftir kl. 16:00 mánudag til föstudags eða á laugardögum og sunnudögum, skal hafa samband við vakthafandi lífeindafræðing. Leita skal til vaktlækna varðandi klínískar skýringar á niðurstöðum rannsókna.

Símanúmer

 Lífeindafræðingur á vakt  824 5208
 Sérfræðingur á vakt  824 5247
 Almennur sími - skiptiborð  543 5660
 Almennar sýklarannsóknir  543 5650
 Blóðvatnspróf  543 5924
 Klamydiurannsóknir  543 5947
 Berklarannsóknir  543 5946
 Ætagerð  543 5925
 Fax Barónsstíg  543 5626
 Fax Ármúla 1a  543 5934

Stjórnendur

Yfirlæknir: Prófessor Karl Gústaf Kristinsson M.D., Ph.D., FRCPath. Netfang: karl@landspitali.is  
Yfirlífeindafræðingur: Erla Sigvaldadóttir. Netfang: erlasigv@landspitali.is   

Upplýsingar um sýklalyfjanæmi

Frekari fyrirspurnum má beina til Kristínar Jónsdóttur gæðastjóra
Netfang: krijons(hjá)landspitali.is   
Sími/tel: (+354) 543 5948

Síðast breytt: 10.03.2010 18:54
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli