LLSV starfsreglur og skipulagsskrá
Lífsýnasafn LSH á sýkla- og veirufræðideild, LLSV
fékk starfsleyfi frá heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneyti þann 5. september 2007.
Skipulagsskrá LLSV Stjórn LLSV
| |
|
|
|
Helstu upplýsingar í samræmi við lög um lífsýnasöfn nr.110/2000:
Ábyrgð
Deildarstjórar sýkla- og veirufræðideilda bera ábyrgð á daglegri vinnslu lífsýna. Eftir að sýnin hafa verið tekin til geymslu í lífsýnasafnið er ábyrgðin í höndum ábyrgðarmanns safnsins.
Allir starfsmenn sem aðgang hafa að lífsýnum safnsins undirrita þagnarskyldu um störf sín.
Markmið
Helsta markmið með starfrækslu lífsýnasafns LLSV er að varðveita og skrá í samræmi við lög og reglugerðir öll þjónustusýni og önnur lífsýni sem þurfa geymslu lengur en 5 ár.
Hvers konar sýni
Í lífsýnasafni sýkla- og veirufræðideilda eru þjónustusýni, þ.e. blóðsýni, vinnsluhlutar þeirra og önnur þjónustusýni er geyma skal til frekari þjónustu við lífsýnagjafa lengur en 5 ár að mati sérfræðings deildarinnar. Safnið getur einnig hýst söfn vísindasýna með tilskildum leyfum.
Sýnin eru skráð, unnin og geymd skv. gæðahandbók.
Hvaðan sýni berast
Sýni eru send deildinni frá sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og læknastofum eða öðrum aðilum til greiningar.
Aðgengi
Lífsýni sem aflað er í tengslum við meðferð skal ætíð vera til reiðu til þjónustu við lífsýnagjafa án sérstaks fyrirvara. Stjórn LLSV setur upp og samþykkir vinnuferli um slíka notkun.
Í lögum um lífsýnasöfn nr. 110/2000 segir að lífsýnum sem tekin eru í þjónusturannsóknir fylgi ætlað samþykki fyrir frekari notkun og geymslu í lífsýnasafni. Mögulegt er að nýta lífsýnin í vísindalegum tilgangi, en þá aðeins að fengist hafi leyfi Persónuverndar og vísindasiðanefnda fyrir þeirri notkun.
Í skipulagsskrá LLSV segir að beiðni um notkun þjónustusýna í vísindarannsókn skuli senda stjórn LLSV ásamt rannsóknaráætlun verkefnisins. Áður en sýni eru afhent skal framvísa samþykktum frá Persónuvernd og viðkomandi vísindasiðanefnd fyrir verkefninu og vottorði frá Landlæknisembætti um samkeyrslu rannsóknarþýðis við úrsagnarskrá Landlæknisembættis.
Sérfræðingar LSH geta tekið ákvörðun um að flytja lífsýni úr landi þegar viðbótarrannsókna er þörf til þjónustu við lífsýnagjafa. Önnur sýni eru ekki flutt úr landi nema með lögformlegum leyfum vísindasiðanefnda og Persónuverndar.
Lífsýnisgjafi getur hvenær sem er afturkallað ætlað samþykki sitt fyrir að lífsýni hans verði vistuð í lífsýnasafni til annarrar notkunar en beinnar þjónustu við hann sjálfan