Reglur um notkun túlkaþjónustu

Samþykktar í framkvæmdastjórn LSH 25. október 2005.

Landspítali - háskólasjúkrahús sinnir í vaxandi mæli sjúklingum sem eru af erlendu bergi brotnir og ber að tryggja að þjónusta við þá sé í samræmi við lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997. Þann 6. september 2005 var undirritaður samningur milli LSH og InterCultural Ísland (ICI) um túlkaþjónustu við spítalann. Samningurinn kveður á um sameiginlegar skyldur, samskipti, trúnað, gildistíma, verðlag og greiðslur. Að ári liðnu, eða í lok sept. 2006, munu samningsaðlilar yfirfara sameiginlega reynslu af samningnum.

Eftirfarandi reglur gilda um verklag:


1. Ákvörðun um fyrirframkaup á þjónustu ICI skal koma frá hjúkrunardeildarstjóra, yfirlækni eða yfirmanni á einingu.Ákvörðun um neyðarútkall á túlki skal tekin af viðkomandi vaktstjóra á deild, sem verður tengiliður LSH við ICI.

2. Til að þjónustan verði sem hagkvæmust er mikilvægt að panta hana fyrirfram, í öllum tilvikum sem því verður við komið. ICI mun senda LSH sína bestu túlka miðað við þá þjónustu sem fyrirtækið á að veita. Skipulag þjónustunnar skal unnið sameiginlega
annars vegar af yfirmanni þegar pöntun er gerð fyrirfram eða vaktstjóra á deild LSH þegar pantaður er túlkur í neyð,
hins vegar ICI eða viðkomandi túlki.
Á pöntuninni skal einnig tilgreint hvert túlkur á að koma, á hvaða tíma og annað sem talið er verða að koma fram. Ef á þarf að halda er hægt að að styðjast við myndir af fánum þjóða til að finna rétta tungumálið. Tryggja skal að túlkur með rétt tungumál eða mállýsku sé pantaður.

3. Fyrirfram ákveðin túlkaþjónusta skal pöntuð á eyðublaði sem er á heimavef LSH, Pöntunareyðublað vegna túlkaþjónustu, undirritað af yfirmanni og senda það sem viðhengi til ICI. Þó er mögulegt að yfirmaður panti þjónustuna um síma ICI á skrifstofutíma (S: 517 9345).
Í lok útkalls skulu bæði yfirmaður og túlkur undirrita eyðublaðið sem túlkurinn hefur með sér. Þar komi m.a. fram hvenær túlkun hófst og hvenær henni lauk.

4. Í neyðarútkalli á túlki ICI skal vaktstjóri á deild hringja í viðeigandi túlk skv. nafnalista ICI. Ef viðeigandi túlkur/túlkar er(u) merktur/merktir með "nei" í neyðarútkallsdálki á nafnalistanum skal hringt í neyðarsíma ICI; S: 893 6588. Í lok útkalls skal viðvera túlks ICI staðfest á túlkabeiðni sem liggur líka frammi á deildum og með undirskrift viðkomandi vaktstjóra á deild og viðkomandi túlks. Þar skal koma fram hvenær túlkun hófst og hvenær henni lauk.

5. Fyrir þessa þjónustu greiðir LSH eftirfarandi gjöld:
a. Venjulegt viðtal (tveggja tíma útkall) – kr. 6.426
b. Neyðarútkall um kvöld, nótt eða útkall án fyrirvara kr. 12.851
- Ef neyðarútkall dregst fram yfir 2 klst á dagtíma, greiðist kr. 3.213 / klst.
- Ef neyðarútkall dregst fram yfir 2 klst að kvöldi, um helgar / nætur, greiðist kr. 6.426 / klst.
c. Símatúlkun frá heilbrigðisstarfsmanni til sjúklings og aftur til heilbrigðisstarfsmanns – kr. 3.373
d. Símaskilaboð aðeins frá heilbrigðisstarfsmanni til sjúklings – kr. 1.445

6. Liður í þeirri viðleitni ICI að senda sína bestu túlka er að LSH mun láta fyrirtækið vita hvernig túlkarnir standa sig. Umsagnir um samskipti LSH og ICI skulu sendar Margréti I. Hallgrimsson (margriha@landspitali.is) eða Guðbjörgu Pálsdóttur (guggap@landspitali.is), sem sjá um frekari samskipti milli LSH og ICI.

7. Reikningar eru sendir af ICI og stílaðir á Landspítala - háskólasjúkrahús, móttaka reikninga, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík, kt. 500300-2130. Eindagi greiðslu er 30 dögum eftir dagsetningu reiknings.

Síðast breytt: 05.05.2009 20:45
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli