Erfða- og sameindalæknisfræði

CTD – carnitin transporter defect sjúkdómur
Upplýsingar frá erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítala (ESD).

Erfða- og sameindalæknisfræðideild (ESD) veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu. Hún er eina deildin sinnar tegundir hérlendis. ESD annast þjónusturannsóknir til greiningar á erfðasjúkdómum og erfðatengdum vandamálum. Erfðarannsóknir eru ýmist gerðar á rannsóknastofum deildarinnar eða á öðrum sérhæfðum rannsóknastofum sem deildin skiptir við. Deildin veitir einnig erfðaráðgjöf.

ESD skiptist upp í eftirfarandi starfseiningar:

Fósturskimun byggist á mælingu lífefnavísa í sermi hjá þunguðum konum á fyrsta eða öðrum þriðjungi meðgöngu. Niðurstöður gefa til kynna hvort líkur á tilteknum litningagöllum eru auknar.

Klínísk erfðafræði - erfðaráðgjöf sinnir greiningu erfðavandamála, almennri erfða­ráðgjöf, erfðaráðgjöfá meðgönguásamt erfðaráðgjöf krabbameina. Einingin útbýr fræðsluefni í erfðafræði fyrir almenning og fagfólk í samvinnu við ýmsa aðila.

Litningarannsóknir sem eru gerðar þegar grunur er um að vanskapnaður, þroska­hömlun eða önnur frávikstafi af litningagalla. Ýmsar aðrar ástæður geta leitt til litninga­rannsókna. Niðurstöður staðfesta eða útiloka litningagalla.

Lífefnaerfðarannsóknir eru gerðar til að greina eða fylgja eftir meðferð á sumum arfgengum efnaskiptasjúkdómum. Þessar rannsóknir eru gerðar í samráði við beiðandi lækni.

Nýburaskimun felst í leit hjá öllum nýfæddum börnum á Íslandi að alvarlegum, með­fædd­um sjúkdómum þ.e. vanstarfsemi skjaldkirtils, fenýlketónúríu og ýmsum arfgengum efnaskiptagöllum.

Sameindaerfðarannsóknir felast í leit aðeða greiningu ástökkbreytingum í erfðaefni hjá einstaklingum sem grunaðir eru um erfðasjúkdóma. Niðurstöðursýnahvort stökkbreytingar séu til staðar eða ekki. Í sumum tilvikum er sameindaerfðarannsóknir notaðar til að meta áhættu einstaklings eða ættingja hans á erfðasjúkdómi.

ESD tengist lífefna- sameindalíffræðasviði læknadeildar H.Í. Auk erfðaþjónustu er ESD vettvangur kennslu ýmissa nemenda í heilbrigðis- og lífvísindum. Á deildinni eru stundaðar margvíslegar vísindarannsóknir í samstarfi við innlenda og erlenda vísindamenn.

Starfsemi ESD fer fram á virkum dögum á dagvinnutíma kl. 8:00 - 16:00.
Gæsluvakt er á litningarannsóknadeild á frídögum (sími 824-5259).

Sýni og sýnamóttaka

Leiðbeiningar um sýni eru á rannsókna­beiðnum einstakra eininga. Sýnamóttaka fyrir litningarannsóknir er í húsi 7 við Barónsstíg á dagvinnutíma en fyrir aðrar tegundir sýna í móttökunni á 2. hæð í K-byggingu við Hringbraut. Hún er opin allan sólarhringinn. Vaktmenn Landspítala Hringbraut (543-1800) taka einnig við sýnum.

Móttaka fyrir blóðsýnatökur eru á vegum klínísku lífefnafræðideildarinnar bæði við Hringbraut og í Fossvogi.

Upplýsingasímar:

  • Fósturskimun 543 5031
  • Litningarannsóknir 543 8062 vaktsími um helgar: 824 5259
  • Nýburaskimun, lífefnaerfðarannsóknir 543 5039
  • Sameindaerfðarannsóknir (DNA)824 5981

Klínísk erfðafræði og erfðaráðgjöf: 

  • Innskráning 543 5070
  • Ráðgjöf 543 5032
  • Almenn móttaka sýna í K-byggingu 543 5000 
  • Upplýsinganetfang ESD er esd@landspitali.is

Póstföng (staðsetning)

Erfða- og sameindalæknisfræðideild
K-byggingu
Landspítala, Hringbraut
101 Reykjavík


Litningarannsóknardeild
v. Barónsstíg,  hús 7
Landspítala, Hringbraut
101 Reykjavík

Sameindaerfðarannsóknir
Læknagarði, 5.hæð
Vatnsmýrarvegi 16
101 Reykjavík

Síðast breytt: 09.03.2010 10:19
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli