Útskriftarteymi

Á Landspítala er starfandi útskriftarteymi sem er starfsfólki, sjúklingum og aðstandendum til ráðgjafar og aðstoðar við flóknar útskriftir. Til þeirra teljast útskriftir þar sem útvega þarf og samhæfa þjónustu fleiri en eins aðila, þar sem vistunarmat í vist- eða hjúkrunarrými er forsenda útskriftar og þar sem grípa þarf til sérhæfðra og sérstakra úrræða. Í teyminu starfa hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar og læknar. Hver legudeild LSH hefur sinn tengilið í útskriftarteyminu. Teymið hefur aðgang að þjónustu iðjuþjálfa. Innlagnarstjóri spítalans veitir teyminu forstöðu.
Útskriftarteymið starfar með fjölmörgum aðilum innan og utan spítalans s.s. félagsþjónustu, heimahjúkrun, vistunarmatsnefnd höfuðborgarsvæðisins og fleiri lykilaðilum. Teymið heldur utan um innri biðlista spítalans

Meginverkefni útskriftarteymisins eru

  • að gegna samræmingarhlutverki í flóknum útskriftum
  • að lágmarka legutíma sjúklinga eftir að meðferð á sérhæfðum deildum er lokið
  • að tryggja að þjónustan verði veitt þar sem sérþekking er í samræmi við heilsufar og þörf einstaklingsins fyrir þjónustu
  • að veita sjúklingum á bráðamóttökum ráðgjöf og leiðsögn varðandi þjónustu og önnur úrræði sem í boði eru
  • hafa yfirsýn yfir sjúklinga á LSH sem eru að bíða eftir öðru úrræði

Ritari teymisins er Sólveig Guðlaugsdóttir s. 543 9309
Netfang teymisins er utskriftarteymi@landspitali.is

 

 

 

 

Síðast breytt: 16.03.2010 16:00
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli