Næring og máltíðir fyrir sjúklinga

Það er mjög mikilvægt að nærast vel þegar maður er veikur. Reyndu því að borða matinn sem í boði er á sjúkrahúsinu, ef þú átt erfitt með að borða þá er mikilvægt að finna út hvað það er sem þú getur borðað. Láttu vita ef þú vilt minni eða stærri matarskammta eða vilt fá að velja hvað þú færð í morgunmat. Það er einnig hægt að fá sojasósu og tómatsósu með mat á deildinni þinni fyrir þá sem vilja. Best er að hvetja aðstandendur til að færa þér eitthvað sem þér finnst gott að borða og er næringarríkt. Passaðu að drekka nægan vökva.

Við matseðlagerð á Landspítala er hugað að samspili næringar, bragðs, útlits, gæða og kostnaðar. Einnig er höfð í huga framleiðslugeta og tækjakostur eldhúss. Heitur matur er framreiddur bæði í hádegi og á kvöldin. Tekið er mið af mismunandi þörfum þar sem matreitt er fyrir fjölbreyttan hóp fólks, bæði starfsmenn og sjúklinga með ýmsar sérþarfir og á öllum aldri.
ATH! Matsalir LSH eru öllum opnir og hægt að kaupa þar heitan mat, samlokur, drykki og aðrar matvörur.

Við gerð matseðla er tekið mið af manneldismarkmiðum fyrir Íslendinga og norrænum ráðleggingum um fæði fyrir sjúka. Allir matseðlar eru næringarútreiknaðir og eru í 4 mismunandi orkustigum. Ekki eru notuð nein hráefni nema fyrir liggi upplýsingar um innihald og næringargildi.

Ráðleggingar til viðmiðunar

Orkugildi:
1/2 skammtur =7 MJ = 1650 he
1 skammtur = 9 MJ = 1940 he
1 1/2 skammtur = 12 MJ = 2850 he

Orkudreifing máltíða
Morgunverður: 25 % Hádegisverður: 30 %
Síðdegishressing: 10 %
Kvöldverður: 25 %
Kvöldhressing: 10 %

Ef þú hefur einhverjar sérþarfir vegna t.d. sjúkdóms, ofnæmis eða óþols er mikilvægt að þú látir vita um það við komu þína á spítalann svo þú fáir rétta þjónustu.

Fljótandi fæði
Fæðið er tvenns konar og er ætlað sjúklingum sem eiga við mikla tyggingar- og kyngingarerfiðleika að stríða og einnig fyrst eftir aðgerð. Fæðið uppfyllir ekki næringarlegar þarfir einstaklingsins og því er það einungis notað í mjög stuttan tíma. Tært fljótandi, F2 er eins og nafnið bendir til algerlega tært en F1 sem oft er notað í framhaldi af F2 er næringarríkara og fjölbreyttara.

-F1:  Hafraseyði, ávaxta- og kraftsúpur, mjólkurvörur og næringardrykkir.
-F2: Hafraseyði, kjötseyði, ávaxtasúpur og safi.

FSMS, fæði ætlað sjúklingum með meltingarfærasjúkdóma:
Fæðið er nýtt af nálinni er ætlað 3-5 fyrstu dagana eftir aðgerð á meltingarvegi. Það brúar bilið milli fljótandi fæðis og almenns fæðis. Um er að ræða auðmeltanlegt og trefjasnautt fæði þar sem forðast er að gefa mat í raspi, nautakjöt, unnar kjötvörur, reyktan og kryddaðan mat. Einnig skyr, hrátt grænmeti og bragðsterkt (rammt) grænmeti t.d. maískorn, lauk, baunir og rósakál.

Fæði fyrir sykursjúka
Um er að ræða almennt fæði án viðbætts sykurs og samræmist það alþjóðlegum ráðleggingum um fæði sykursjúkra.

Orku og próteinbætt fæði
Fæðið sem byggir á almennu fæði eins og hægt er og ætlað þeim sem nærast illa en þurfa mikla orku og aukalegt magn próteina. Rjómi og mismunandi næringarduft er notað við orku- og próteinbætingu á súpum, vellingum, sósum og pottréttum. Magn grænmetis er helmingi minna en á almennu fæði. Eftirréttir eru sérlagaðir eða rjómi skammtaður með ef sá á almennu fæði er orkurýr, t.d. ef um er að ræða ávaxtasalat þá er þeyttur rjómi skammtaður með.
Orkustigin eru tvö sem miðast annars vegar við 7 MJ orkumagn, þar sem miðað er við 5 MJ skammtastærðir og 9 MJ orkumagn, þar er miðað við 7 MJ skammtastærðir.
Orku- og próteinbætt fæði er mikið að ryðja sér til rúms innan spítalans og er það t.d. staðlað fæði á krabbameinsdeild 11E.

Fitusnautt fæði 40 g
Fæðið er ætlað sjúklingum með lélega meltingu, skert fitufrásog, lifrarsjúkdóma og stuttan þarm. Almennt fæði er notað eins mikið og hægt er þó eru sumar fæðutegundir útilokaðar, t.d. unnar kjötvörur. Sósur eru sérlagaðar í flestum tilfellum.

Próteinsnautt fæði
Fæðið er ætlað sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi og lifrarsjúkdóma. Magn próteina er mismunandi; 50 g , 60 g og 80 g og er það ákvarðað af lækni eða næringarráðgjafa. Almennt fæði er notað eins mikið og mögulegt er en magn kjöts, fisks, eggja og mjólkurvara er þó mjög takmarkað. Meðlætið er það sama og á almennu fæði. Sósur og eftirréttir eru oft sérlagaðir og þá gjarnan orkubættir með rjóma eða að rjómi er notaður út á.

Blóðskilunarfæði (dialysa)
Fæðið er ætlað sjúklingum með það skerta nýrnastarfsemi að þeir þurfa að fara í blóðskilun reglulega. Almennt fæði er lagt til grundvallar þessu fæði með nokkrum undantekningum þó. Fæðið er snautt af natríum (salti), kalíum og fosfat og þýðir það að ekki er boðið upp á banana, apríkósur, kíví, mjólkurafurðir og reykt og saltað kjöt og fisk. Vökvi er takmarkaður og því eru súpur lítið notaðar. Eftirréttir eru almennt orkuríkir, t.d. rjómabættir.

Saltsnautt fæði
Fæðið er ætlað sjúklingum sem draga þurfa úr saltneyslu sinni, t.d. vegna hækkaðs blóðþrýstings og hjartasjúkdóma (hjartabilunar). Almennt fæði er notað eins og hægt er þar sem það er að upplagi lágt í natríum eða < 3.500 mg. Eftirréttir eru sérvaldir og sérlagaðir í flestum tilfellum, t.d. eru kraftsúpur útilokaðar. Unnar kjöt og fiskvörur eru ekki gefnar og sósur eru sérlagaðar. Ef einstaklingur þarf sérstaklega saltsnautt fæði ber að panta slíkt í gegnum næringarráðgjafa eða hafa samband við sérfæðisskrifstofu.

Mjólkurafurðir 
Fæðið er ætlað sjúklingum sem eru með ofnæmi eða hafa óþol fyrir mjólk og mjólkurafurðum. Almennt fæði er lagt til grundvallar eins og hægt er nema að allt hráefni sem inniheldur hverskonar mjólkurafurðir, mjólkurprótein og mjólkursykur (laktósa), hversu lítið sem magnið er, eru útilokaðar. Sósur eru sérlagaðar og eftirréttir eru oftast sérvaldir og sérlagaðir.

Mjólkurmatur
Fæðið er ætlað sjúklingum sem kjósa að takmarka mjólk og mjólkurafurðir í mataræði sínu. Almennt fæði er lagt til grundvallar eins og hægt er nema að fæðutegundir og réttir sem innihalda mikla mjólk eru útilokaðir. Dæmi um slíka eru vellingar, ís, sumir búðingar og súpur. Sumar sósur eru sérlagaðar og eftirréttir eru oft sérvaldir og sérlagaðir.

Örveruskert fæði
Fæðið er ætlað sjúklingum sem eru með bælt ónæmiskerfi vegna hvítblæðis, lyfjameðferðar og/eða geislameðferðar. Almennt fæði er notað til grundvallar nema sneytt er hjá hráu grænmeti og skornum ávöxtum. Einungis er boðið upp á soðið grænmeti og ávexti með þykku hýði, t.d. banana. Gæta þarf að öllum áhöldum og borðbúnaði sem notaður er við framleiðslu og framreiðslu fæðisins. Starfsfólk eldhúss viðhefur sérstakar vinnureglur við meðhöndlun fæðisins og er mikilvægt að starfsfólk deilda viðhafi slíkt hið sama og gæti þess að bakkinn standi ekki opinn eða sé opnaður fyrr en við rúm einstaklingsins.

Ofnæmisfæði
Fæðið er ætlað sjúklingum sem hafa ofnæmi fyrir ýmsum fæðutegundum. Ofnæmisvakar eru mismunandi, þeir algengustu eru sojaafurðir, mjólk, hveiti, glúten, egg, fiskur, hnetur, latex, maís, nikkel og jafnvel MSG. Tryggja ber öryggi með nákvæmum innihaldslýsingum frá birgjum og framleiðendum og hefur næringarráðgjafi yfirumsjón með innihaldslýsingum.

Heimilt er að koma með mat til sjúklinga en farið er fram á að slíkt sé skráð á viðeigandi eyðublöð sem til eru á öllum deildum. Þetta er gert til að tryggja rekjanleika ef upp kemur matareitrun.

Síðast breytt: 05.11.2010 14:42
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli