Innskráning
Upplýsingasöfnun fyrir fyrsta viðtal (innskráning)
Erfðaráðgjafi safnar upplýsingum fyrir fyrsta viðtal á stofu. Sú upplýsingasöfnun fer oftast fram í símtali. Upplýsingarnar sem fást eru notaðar til að teikna ættartré. Spurt er um almennt heilsufar og sjúkdóma, einkum krabbamein, foreldra og systkina, afa og ömmu, systkina þeirra og afkomenda. Reynt er að fá upplýsingar um þrjá ættliði.
Allar upplýsingar hjálpa til við mat á arfgengi sjúkdóms. Ekki er víst að ráðþegi hafi þær á reiðum höndum en gott er að hafa þær sem nákvæmastar. Upplýsingar um almenna heilsu einstaklinga í fjölskyldunni geta haft áhrif á erfðaráðgjöf því stundum geta ákveðnir sjúkdómar verið undirliggjandi ástæður fyrir krabbamein.
Við áhættumat vegna krabbameina eru einnig notaðar staðfestar upplýsingar um krabbamein frá Krabbameinsskrá. Til þess að fá þær þarf ráðþegi að skrifa undir leyfi til ættrakningar. Krabbameinsskrá hefur ekki staðfestar upplýsingar um krabbamein sem greind voru fyrir árið 1955 og heldur ekki um þá sem greindir hafa verið á síðustu tveimur árum fyrir gerð ættartrés.
Til þess að fá sem gleggsta mynd af krabbameinum innan fjölskyldunnar er nauðsynlegt að hafa upplýsingar bæði frá ráðþega og krabbameinsskrá.
Ráðþegi fær ekki heilsufarsupplýsingar um aðra í fjölskyldu í gegnum erfðaráðgjöfina.