Skurð- og svæfingadeildir
Skurðstofur eru samtals 20 talsins í fjórum húsum. Í Fossvogi eru átta skurðstofur og þar fara fram heila- og tauga, háls-, nef- og eyrna, æða-, lýta- og bæklunarskurðaðgerðir. Í aðalbyggingu við Hringbraut eru sjö skurðstofur þar sem fara fram almennar skurðaðgerðir, barna-, þvagfæra-, brjósthols- og augnskurðaðgerðir.
Í kvennadeildahúsinu við Hringbraut eru að auki þrjár skurðstofur sem sinna kvenna- og fæðingardeild auk skurðaðgerða vegna brjóstameina. Loks eru tvær skurðstofur á dagdeild augnlækninga við Eiríksgötu þar sem fyrst og fremst eru gerðar augasteinsaðgerðir og inndælingar lyfja í augu.
Síðast breytt: 04.09.2009 10:39