Um lyflækningasvið

Lyflækningasvið er stærsta svið Landspítala og viðfangsefni þess lúta að mörgum algengustu og alvarlegustu heilsufarsvandamálum landsmanna og oft er um að ræða þjónustu sem hvergi er veitt annars staðar á landinu. Sérstök lyflækningadeild hefur verið starfandi á Landspítala allt frá stofnun spítalans 1930. Á lyflækningasviði eru tæplega 1.500 starfsmenn sem tilheyra fjölmörgum starfsstéttum. Mikil áhersla er á teymisvinnu sérfræðinga og starfsstétta.

Vilhelmína Haraldsdóttir er framkvæmdastjóri lyflækningasviðs.

Auk þess að sinna sjúklingum með almenn lyflæknisfræðileg og fjölkerfa vandamál er veitt sérhæfð þjónusta í eftirtöldum greinum:

Blóðsjúkdómar
Endurhæfing
Gigtsjúkdómar
Hjartasjúkdómar
Húð- og kynsjúkdómar
Innkirtla- og efnaskiptasjúkdómar
Krabbameinslækningar
Lungnasjúkdómar
Meltingarsjúkdómar
Nýrnasjúkdómar
Ofnæmissjúkdómar
Smitsjúkdómar
Taugasjúkdómar
Öldrunarsjúkdómar

Starfsemi lyflækningasviðs fer fram á mörgum stöðum þ.e. í Fossvogi, við Hringbraut, á Landakoti, á Grensási og í Kópavogi.

Bráðastarfsemin fer að mestu fram í Fossvogi og á Hringbraut. Þjónusta er veitt á legudeildum, dag- og göngudeildum, bráðamóttökum og sérhæfðum rannsóknar- og meðferðarstofum. Þá er veitt sérfræðiráðgjöf á öllum deildum spítalans eftir þörfum.

Öldrunarþjónustan er að mestu staðsett á Landakoti en einnig á bráðaöldrunardeild B4 í Fossvogi. Öldrunarlæknar veita ráðgjöf um meðhöndlun aldraðra á flestum deildum spítalans og þjónusta nokkur hjúkrunarheimili borgarinnar samkvæmt sérstökum samningum þar að lútandi.

Endurhæfingarþjónusta er mikilvægur hluti af sviðinu og er hún aðallega staðsett á Grensási auk þess sem þjálfun og ráðgjöf er veitt á öllum deildum spítalans. Sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfarar og talþjálfarar Landspítala starfa á sviðinu en þeir veita þjónustu eftir þörf á öllum klínískum sviðum spítalans.

Tvær líknardeildir eru á sviðinu, önnur fyrir aldraða á Landakoti en hin er í Kópavogi. Heimahlynning starfar í tengslum við líknarráðgjafateymi og veitir sjúklingum á líknandi meðferð sérhæfða þjónustu sem miðar að því að gera þeim kleift að vera sem lengst heima.

Á árinu 2008 voru um 10 þúsund innlagnir á lyflækningasviði en legudagar voru tæplega 115 þúsund. Legutími hefur styst mjög og vaxandi hluti starfseminnar fer fram á dag- og göngudeildum. Á árinu 2008 voru komur á dagdeildir rúmlega 35 þúsund og komur á göngudeildir rúmlega 141 þúsund.

Starfsemi lyflækningasviðs felst fyrst og fremst í þjónustu við sjúklinga en menntun heilbrigðisstétta og vísindarannsóknir eru einnig afar mikilvægir þættir í starfsemi háskólasjúkrahúss. Margar heilbrigðisstéttir sækja hluta af menntun sinni á lyflæknissviði en nemar í hjúkrunarfræði og læknisfræði eru þar langfjölmennastir. Sviðið er einnig vettvangur rannsóknartengds framhaldsnáms til meistara- eða doktorsprófs og framhaldsnáms sem miðar að sérhæfingu og starfsréttindum bæði í hjúkrunarfræði og læknisfræði.

Síðast breytt: 08.02.2011 09:15
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli