Öryggi og flutningar
Sími: 543 1000 (skiptiborð Landspítala )
Rekstrarstjóri öryggis er Pálmi Þór Ævarsson s. 543 1806, 824 5230
Netfang palmiaev@landspitali.is .
Öryggi annast öryggis- og vaktþjónustu á Landspítala allan sólarhringinn alla daga ársins. Markmiðið er að tryggja öryggi starfsmanna, sjúklinga, aðstandenda og annarra sem eiga erindi á sjúkrahúsið, auk þess að veita góða þjónustu þar sem lipurð og góð framkoma er aðalsmerki.
Deildin sér um öryggisgæslu, vöktun eftirlitsmyndavéla og öryggiskerfa, húsvörslu, opnanir og lokanir húsa, vörumóttöku, vörudreifingu, matarflutninga, lyfjaflutninga, póst-, sýna-, og blóðflutninga og sjúklingaflutninga.
Öryggi eru með starfsemi við Hringbraut, í Fossvogi, á Landakoti og á Grensási og sinnir auk þess þjónustu við aðra starfsstaði LSH. Á Landspítala er eftirlitsmyndavélakerfi, (rafræn vöktun), sem uppfyllir kröfur Persónuverndar.
GÆTUM ÖRYGGIS!
Ávallt skal ganga tryggilega frá verðmætum og geyma á öruggum stað. Óæskilegt er að geyma sýnileg verðmæti í bílum á bílastæðum.
Þjófnaði eða önnur atvik sem kunna að koma upp á LSH skal tilkynna starfsfólki viðkomandi deilda.