Meðgöngu- og sængurkvennadeild 22A

Meðgöngu- og sængurkvennadeild 22A er aðallega fyrir þær konur sem farið hafa í keisaraskurð, átt barn fyrir tímann, barnið hefur verið tekið með sogklukku eða töng og svo þær konur sem hafa önnur vandamál tengd meðgöngu, fæðingu eða sængurlegu.

Lögð er áhersla á fræðslu, leiðbeiningar og hjálp við að laga sig að foreldrahlutverkinu.
Rík áhersla er lögð á brjóstagjöf og sólarhringssamveru móður og barns sem og eftirlit með heilsu þeirra. Æskilegt er að nýja barnið/börnin myndi sem fyrst tengsl við nánustu fjölskyldu sína.

Legutími er 3-6 dagar og miðast við hvernig fæðingin var og aðstæður hverju sinni. Talning daga eftir fæðingu miðast við hádegi. Ef kona fæðir fyrir hádegi telst sá dagur vera fyrsti legudagur en hafi kona fætt eftir hádegi telst næsti dagur vera fyrsti dagur.

Deildin þjónar einnig konum með vandamál á meðgöngu. Helstu ástæður fyrir innlögnum á meðgöngu eru háþrýstingur móður eða meðgöngueitrun, hótandi fyrirburafæðing, blæðing og/eða verkir á meðgöngu, ýmsir sjúkdómar hjá móður og síðkomin fósturlát. Konur sem missa fóstur um miðja meðgöngu eða koma inn þegar binda þarf enda á meðgöngu vegna vandamála móður eða fósturs dvelja á deild 22A.
Við þessar aðstæður, sem oft eru afar þungbærar, er lögð áhersla á andlega aðhlynningu í samvinnu við sjúkrahúspresta.

Staðsetning:  Á 2. hæð í A-álmu kvennadeildahúss.

Sími:  543 1000
Símanotkun:  Sængurkonum er heimilt að nota farsíma. Mikilvægt er að taka tillit til stofufélaga og hafa slökkt á hringingu.
Heimsóknartími fyrir nánustu ættingja er frá kl. 17:00 - 19:00.
Utan þess tíma eru heimsóknir ekki leyfðar inn að rúmi móðurinnar til þess að hún hafi tækifæri til að hvílast, ná bata og geti notið leiðsagnar. Börn önnur en systkini eiga ekki að koma í heimsókn til sængurkvenna.  

Deildarstjóri:  Helga Sigurðadóttir helgsig@landspitali.is   
Yfirlæknir: Hildur Harðardóttir, hhard@landspitali.is 

Heimaþjónusta ljósmæðra
Öllum konum sem eiga að baki eðlilega meðgöngu og fæðingu og hafa alið heilbrigt barn gefst kostur á að fara heim innan 36 klst. frá fæðingu og njóta umönnunar ljósmóður næstu daga heima.

Útskriftarviðtal
Útskriftarviðtal er samtal á milli ljósmóður og sængurkonu kvöldið fyrir heimferð. Farið er í gegnum helstu þætti er lúta að umönnun barnsins, brjóstagjöf, sængurlegu og viðeigandi fræðsla og ráðgjöf er veitt. Æskilegt er að brottför sængurkonu af deildinni sé fyrir hádegi heimferðardaginn

Síðast breytt: 11.07.2011 09:45
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli