Krabbameinserfðaráðgjöf
Erfðaráðgjöf vegna krabbameina er ferli sem falist getur í nokkrum samtölum og rannsóknum. Nokkur tími getur liðið á milli viðtala.
Þegar beiðni hefur komið um erfðaráðgjöf er hringt í ráðþega og fengar upplýsingar fyrir ættartré. Sú upplýsingasöfnun er kölluð innskráning (e: intake).
Ástæður fyrir erfðarágjöf vegna krabbameina geta verið t.d.:
-
Sterk ættarsaga
-
Æxli hafa greinst í pöruðum líffærum (báðum brjóstum t.d.)
-
Tvö eða fleiri (sjaldgæf) æxli greinast í sama einstaklingi eða nánum ættingjum
-
Ráðþegi (sá sem kemur í viðtal) hefur áhyggjur vegna fjöskyldulægs krabbameins
-
Æxli greind hjá ungum einstaklingum, yngri en meðalaldur fyrir viðkomandi krabbamein
-
Samskonar eða skyld æxli hjá mörgum í sömu fjölskyldu
-
Krabbamein sem greinast vísa í ákveðin heilkenni
-
Læknir telur fjölskyldusögu ráðþega gefa tilefni til þess að vísa í
Ath. Ekki þarf sérstaka tilvísun í erfðaráðgjöf og getur hver og einn pantað viðtal. Símar í afgreiðslu erfðaráðgjafar eru 543 5070 og 543 5032.
Kostnaður
Greiða þarf komugjald á göngudeild. Einnig þarf að greiða blóðtökugjald þegar blóð er tekið vegna erfðarannsókna.
Nánari upplýsingar um erfðaráðgjöf.
Síðast breytt: 11.03.2011 09:31