Iðjuþjálfun við Hringbraut
Starfsemi
Starfsemin er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga. Opið er fyrir þjálfun sjúklinga alla virka daga frá kl.9.00-12.00 og 13.00-15.00Nemar í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri koma í vettvangsnám á Hringbraut. Iðjuþjálfun sinnir aðallega sjúklingum frá móttöku- og meðferðardeildunum 32A, 32C og 33C og frá göngudeild við Hringbraut. Iðjuþjálfar eru í samstarfi við aðrar fagstéttir s.s. geðlækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga, félagsráðgjafa og næringarfræðinga. Einnig sinna iðjuþjálfar eftirfylgd eftir útskrift af legudeildum LSH. Eftirfylgd getur farið fram á ýmsum vettvangi s.s. á heimili, vinnustað, önnur úrræði fyrir utan sjúkrahúsið og/eða í formi stuðningsviðtala.
Í iðjuþjálfun er fjölbreytt starfsemi í boði s.s. einstaklingsþjálfun, hópameðferð og starfsendurhæfing. Iðjuþjálfun er einstaklingsmiðuð tekið er mið af andlegum, líkamlegum og féglaslegum þörfum og færni einstaklinga hverju sinni. Í samvinnu við einstaklinga eru sett persónuleg langtíma- og skammtímamarkmið sem reglulega eru endurskoðuð, þar sem tekið er mið af áhugasviði og getu einstaklingsins hverju sinni.
Beiðnir
Beiðni um iðjuþjálfun berast frá legu- og göngudeild geðsviðs skriflega og/eða rafrænt í Sögukerfi á eyðublað merkt Beiðni um meðferð/rannsókn frá geðlæknum/fagfólki geðsviðs Landspítala.
- Iðjuþjálfun við Hringbraut
- Iðjuþjálfun Kleppi
- Kleppstíðindi
- Fjölritun LSH
- Iðjuþjálfar á geðdeildum
- Hjálplegar vefsíður