Fjölritun LSH

Aðsetur Iðjuþjálfun Kleppi, Iðjukaffi

Starfsfólk

  • Aðalheiður Helgadóttir
  • Svavar Sigurðsson

Opnunartími

  • Mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 
  • Föstudaga kl. 09:00 til 12:00
  • Alltaf er lokað í hádeginu

Þjónusta

Fjölritun LSH veitir deildum sjúkrahússins margs konar þjónustu varðandi fjölföldun prentefnis, svo sem ljósritun, fjölritun, heftun og gormun. Fjölritun er hluti af starfsemi iðjuþjálfunar á geðsviði.

Fjölritun er starfsendurhæfing fyrir einstaklinga sem stefna út á almennan vinnumarkað. Hún hefur verið stökkpallur fyrir marga til að komast aftur í fyrri störf, hefja starfsferil sinn eða undirbúa nám. Sex til átta einstaklingar hafa tækifæri hverju sinni til að vera í þjálfun. Þrír til fjórir eru í vinnu fyrir hádegi frá kl. 9:15 til 12:00 og aðrir þrír til fjórir eftir hádegi frá kl. 13:00 til 15:00.

Spítalapúlsinn er fjölfaldaður á fjölrituninni ásamt fjölmörgu öðru prentefni á sjúkrahúsinu.

Í boði er:

  • Ljósritun í lit og svarthvítu frá stærð A5 upp í A3, plöstun, gormun, götun og innbinding
  • Mikið úrval af lituðum pappír og í mismunandi þykktum

Til þess að auðvelda fólki að setja saman efni til prentunar og fjölföldunar hafa verið útbúnir ýmsir grunnar að forsíðum, kápum og spjöldum til að fylla inn í, eftir þörfum hvers og eins. Einnig er hér að finna tilbúin plaköt og fleira efni sem nýtist á öllum spítalanum. Allt þetta efni er síðan hægt að fá fjölfaldað, innbundið og plastað hjá fjölrituninni

Pöntun á þjónustu

Verkbeiðni. Hægt er að panta þjónustu með tölvupósti á netfang: fjolritun@landspitali.is, símleiðis eða með því að koma á staðinn

Greiðsla

Gjaldfært er fyrir þjónustu innan sjúkrahússins mánaðarlega. Aðrir staðgreiða samkvæmt gjaldskrá

Til baka >>>> 

Síðast breytt: 18.03.2010 09:28
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli