Hvað á að hafa með sér?
Við innlögn á sjúkrahús biðjum við sjúklinga að hafa með sér
- þau lyf sem þeir taka og lyfjakort
- eigin lyf og yfirlit yfir lyf úr lyfjaskömmtun
- góða inniskó sem styðja vel við fætur
- léttar buxur
- náttslopp
- snyrtivörur
- hjálpartæki s.s. staf, göngugrind, hjólastól
Gott er einnig að taka með sér matvæli eða drykkarföng sem þú vilt og getur borðað á milli mála.
Sem dæmi:
- sérstakir drykkir
- smooties
- kex
- ávextir
- þurrkaðir ávextir
- möndlur og hnetur
- annað sem að þú ert vanur/vön að fá þér á milli mála.
Sjúklingar geta haft með sér eigin farsíma en sjúkrahúsið getur ekki borið ábyrgð tapist þeir eða skemmist. Sama á við um fartölvur.
Vinsamlegast skiljið verðmæti eins og peninga og skartgripi eftir heima eins og unnt er.
Landspítali tekur enga ábyrgð á eigum sjúklinga og gesta
Síðast breytt: 05.11.2010 14:43