Leit
Loka

Dagdeild skurðlækninga 13D

Tekið á móti sjúklingum sem leggjast inn til skurðaðgerðar á Landspítala Hringbraut

Deildarstjóri

Elín María Sigurðardóttir

elinmsig@landspitali.is
Banner mynd fyrir  Dagdeild skurðlækninga 13D

Hafðu samband

OPIÐ07:00-20:00 mánudaga til fimmtudaga

07:30-20:00 á föstudögum

Dagdeild skurðlækninga Hringbraut - mynd

Hér erum við

Aðalbygging Hringbraut, 3. hæð – D álma

Sjá staðsetningu á korti

Hagnýtar upplýsingar

Á dagdeild skurðlækninga er tekið á móti sjúklingum sem eru að leggjast inn til skurðaðgerðar á Landspítala Hringbraut.
Við Hringbraut eru aðgerðir á kviðarholi, þvagfærum, hjarta- og brjóstholi og augum.

Sjúklingar koma á deildina að morgni aðgerðardags og þar fer fram undirbúningur fyrir aðgerð.  Sjúklingar sem ekki þarfnast innlagnar á legudeild eftir aðgerð koma aftur á dagdeildina eftir skurðaðgerðina til að jafna sig áður en þeir útskrifast heim. Aðrir sjúklingar fara á legudeildir eftir aðgerð. 

Dagdeildin tekur einnig við sjúklingum sem leitað hafa á bráðamóttöku í Fossvogi og þurfa frekari skoðun og mat.  Margir útskrifast heim að kvöldi en aðrir þarfnast bráðrar skurðaðgerðar og leggjast í framhaldinu inn á legudeild.

Á dagdeild koma einnig þeir sjúklingar sem þurfa á styttri meðferð að halda og geta farið heim samdægurs, til dæmis eftir lyfjagjöf, verkjameðferð, ástungur og aftöppun á vökva í kviðarholi.

Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans.  Þannig er hægt að komast í tölvupóstsamskipti, nota samskiptamiðla og vafra um. 

Atriði sem vert er að hafa í huga um notkun á Netinu:

  • Talið ekki um aðra sjúklinga, aðstandendur eða starfsfólk nema með leyfi viðkomandi
  • Setjið ekki inn myndir af öðrum, aðstandendum eða starfsfólki nema með leyfi viðkomandi
  • Setjið ekki upplýsingar úr sjúkraskrá á Netið
  • Virðið friðhelgi einkalífsins og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi
 

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?