Leit
Loka

Lungnadeild

Meginviðfangsefni er greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráða og langvinna lungnasjúkdóma

Deildarstjóri

Guðrún Árný Guðmundsdóttir

gudrgudm@landspitali.is
Yfirlæknir

Sif Hansdóttir

sifhan@landspitali.is

LungnadeildGöngudeild lungnasjúkdóma

Göngudeildin er á 3 hæð í A álmu

Banner mynd fyrir  Lungnadeild

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Lungnadeild - mynd

Hér erum við

Fossvogur- Aðalinngangur Krókur- A álma 6. hæð

Hagnýtar upplýsingar

Meginviðfangsefni

  • Bráð lungnavandamál
  • Langvinnir lungnasjúkdómar
  • Önnur vandamál í öndunarfærum   

Á deildinni er greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráða og langvinna lungnasjúkdóma.  Flestir sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðadeild, bráðalyflækningadeild eða gjörgæsludeild.

 Á deildinni eru tvær sérútbúnar hágæslustofur ætlaðar mikið veikum sjúklingum sem þurfa nákvæmt eftirlit og/eða einangrun

Legudeild með 20 rúmum.
Starfsmenn eru um 60 talsins.
Meðaldvalartími er 8 dagar.

Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur. 

  • Deildin er opin allan sólarhringinn allan ársins hring
  • Sjúklingar leggjast inn hvenær sem er sólarhringsins og útskrifað er alla daga
  • Sjúklingum er sinnt allan sólarhringinn, allt eftir þörfum hvers og eins en mest er um að vera á morgnana. Þá er veitt aðstoð við persónulega umhirðu, genginn stofugangur og útskriftir undirbúnar
  • Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru kl. 08:00, 15:30 og 23:00
  • Stofugangur er kl. 09:00-11:00
  • Heimsóknartímar eru eftir samkomulagi en yfirleitt ekki fyrir hádegi eða eftir kl. 20:00
  • Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar gegna mikilvægu hlutverki í meðferð, fræðslu og ráðleggingum til sjúklinga
  • Félagsráðgjafar veita ráðgjöf varðandi réttindamál, búsetuúrræði og færni og heilsumat
  • Sálfræðingar eru kallaðir til eftir þörfum fyrir sjúklinga og aðstandendur
  • Næringarráðgjafar veita fræðslu og ráðgjöf um mataræði
  • Prestar og djáknar sinna sálgæslu sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks

  • Allir sjúklingar fá mat á deildinni nema þeir séu tímabundið fastandi vegna rannsókna, aðgerða eða sjúkdómsástands
  • Morgunverður er borinn fram um kl. 8:30, hádegisverður um kl. 12:00, miðdegiskaffi um 14:30, kvöldmatur kl. 17:30 og kvöldkaffi um 19:30
  • Á ganginum er vatnskælivél
  • Kæliskápur fyrir sjúklinga ásamt borði með blómavösum og merkimiðum
  • Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljólausa stillingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma.
  • Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi
  • Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans
  • Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3. Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum
  • Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala
  • Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum
  • Hraðbanki er í anddyri og sjálfsalar eru á nokkrum stöðum í húsinu
  • Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga kl.10:00 á Landspítala Fossvogi, stigapalli á 4. hæð. Þær eru auglýstar sérstaklega

Sjúkrahúsdvöl á aldrei að vera lengri en nauðsyn krefur og sjúklingar eiga að jafnaði að fá upplýsingar um útskrift innan sólarhrings frá innlögn.

Við útskrift á sjúklingur rétt á að fá:

  • Upplýsingar um ástæður innlagnar, meðferð og niðurstöður rannsókna.
  • Upplýsingar um áframhaldandi eftirlit ef slíkt er fyrirhugað og hvert á að leita eftir niðurstöðum sem liggja ekki fyrir við útskrift.
  • Upplýsingar um hættumerki sem þarf að vera vakandi fyrir eftir heimkomu og hvert á að leita ef vandamál koma upp eftir útskrift.
  • Yfirlit yfir þau lyf sem á að taka, skammtastærðir og tímalengd ef við á. Lyfseðlar eru sendir rafrænt í lyfjagátt og er hægt að leysa út í hvaða apóteki sem er.

Allt um útskrift, endurnýjun lyfseðla og útskriftarteymi

Landspítali er háskólasjúkrahús og þangað kemur ár hvert fjöldi nema í hinum ýmsu starfsgreinum til kennslu og þjálfunar.

Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga. Þeir eru alltaf á ábyrgð undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.

Þá er unnið umfangsmikið vísindastarf á sjúkrahúsinu.

Sjúklingar eru stundum beðnir um að taka þátt í slíkum verkefnum og eiga þeir þá rétt á ítarlegri upplýsingagjöf um tilgang og framkvæmd verkefnis.

Hverjum og einum er heimilt að neita slíkri þátttöku eða hætta henni hvenær sem er án skýring

Allir sjúklingar eiga að fá armband með nafni og kennitölu. Upplýsingar á armbandinu eru notaðar til staðfestingar þegar lyf eru gefin, við blóðgjafir og hvers kyns rannsóknir og aðgerðir. Stundum þykir fólki nóg um hversu oft er til dæmi spurt um kennitölu, ofnæmi og lyfjanotkun en allt er þetta gert til að tryggja öryggi. Best er ef sjúklingar eru vakandi fyrir þessum vinnureglum og minni á ef ekki er farið eftir þeim. Hjálpaðu okkur að tryggja öryggi þitt.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?